Bandaríska félagið Atlanta United sem leikur í MLS deildinni tilkynnti í gær að Gabriel Heinze þjálfari liðsins hefði verið látinn taka poka sinn. Rob Valentino aðstoðarþjálfari tekur tímabundið við stjórnvölunum. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að ólík vandamál sem tengjast daglegri stýringu liðsins hafi verið orsökin að brottrekstrinum.
„Þetta var svo sannarlega ekki ákvörðun sem við vildum taka á þessum tíma keppnistímabilsins, en þetta var rétta ákvörðunin í stöðunni,“ sagði Darren Eales, forseti félagsins.
„Gabi er klár þjálfari og óneitanlega ástríðufullur um starf sitt og fótbolta almennt. Við erum honum þakklátir fyrir samstarfið og óskum honum alls hins besta í framtíðinni.“
Heinze tók við Atlanta United í fyrra eftir tvö og hálft ár við stjórnvölinn hjá Argentíska liðinu Velez Sarsfield. Atlanta vann fjóra, gerði átta jafntefli og tapaði fimm leikjum undir hans stjórn.