fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Gift knattspyrnugoðsögn hefur sent fjölda kynferðislegra skilaboða á raunveruleikasjónvarpsstjörnu – Bað um tugi mynda af brjóstum hennar

Helgi Sigurðsson
Sunnudaginn 20. júní 2021 08:00

Rebecca Jane

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska knattspyrnugoðsögnin Michael Owen hefur skipst á vafasömum skilaboðum við raunveruleikasjónvarpsstjörnuna Rebecca Jane frá því í vor. Hann bað til að mynda um tuttugu myndir af henni þar sem hún væri ber að ofan. Þessi fyrrum leikmaður er giftur Louise Bonsall. Mirror fjallar um málið.

Hinn 41 árs gamli Owen lék á ferli sínum fyrir lið á borð við Liverpool, Real Madrid, Newcastle og Manchester United. Hann starfar í dag sem sérfræðingur á BT Sport. 

Owen fór að fylgja Jane, sem kom fram í raunveruleikaþáttunum ,,Big Brother“ árið 2017, á Twitter í mars. Í kjölfarið fóru þau að skiptast á skilaboðum. Fljótlega urðu skilaboðin af kynferðislegum toga.

,,Koma svo, sendu þær á mig. Þetta hefur verið leiðinlegt ferðalag til Lundúna svo ég þarf eitthvað að gera. Ekki skilja neitt eftir. Ég skal svo segja þér hvaða myndir henta fyrir samfélagsmiðla. Vonandi er það engin þeirra,“ skrifaði Owen til Jane er hann var einn í vinnuferð í Lundúnum.

,,Þú fórst strax alla leið með því að senda mér mynd af brjóstunum á þér svo það er best að vera ekki að halda aftur af þér núna. Hvað með að þú sendir mér um tuttugu myndir? Það væri flott,“ bætti hann svo við.

Í öðrum skilaboðum mátti sjá Owen segjast vera með fjölskyldu sinni þegar Jane sendi honum myndir þar sem hún var í baði.

Owen ásamt eiginkonu sinni. Louise Bonsall.

Einnig mátti sjá á samskiptum þeirra að Jane hafði verið mikill stuðningsmaður Owen er hún var yngri. Hún er sjö árum yngri en hann. Vinkona hennar sagði jafnframt að hún hafi verið himinlifandi með það að Owen hafi haft samband við hana. Hún hafi vitað að samskiptin hafi verið vafasöm vegna þess að hann er giftur en samt sem áður ákveðið að halda þeim áfram.

Owen hefur almennt verið vel liðinn á meðal almennings. Hann virðist átt sig á því sjálfur miðað við skilaboð sem hann sendi Jane snemma í þeirra samskiptum.

,,Ég elska hvernig allir halda að ég sé engill en svo eftir að hafa talað við mig í innan við mínútu átta þau sig á því að þau höfðu rangt fyrir sér,“ skrifaði hann.

Síðustu samskiptin á milli þeirra áttu sér stað þann 5. júni síðastliðinn. Talsmaður Owen vildi ekki tjá sigum málið er hann var spurður um það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var
433Sport
Í gær

Liverpool að hætta í Nike og fara líklega í Adidas – Fá þó ekki sömu kjör og United

Liverpool að hætta í Nike og fara líklega í Adidas – Fá þó ekki sömu kjör og United