Brasilíski vinstri bakvörðurinn Marcelo er óvænt orðaður við Everton og Leeds á vef Mirror í dag.
Talið er líklegt að hinn 33 ára gamli Marcelo verði seldur frá Real Madrid í sumar. Carlo Ancelotti tók nýverið við liðinu og er bakvörðurinn ekki í plönum hans. Einhver lið gætu því freistað þess að sækja hann.
Marcelo á eitt ár eftir af samningi sínum við Real Madrid. Hann gæti því verið fáanlegur fyrir sanngjarna upphæð.
Þessi reynslumikli bakvörður hefur unnið allt galleríið af titlum í höfuðborg Spánar. Hann kæmi með dýrmæta reynslu inn í öll lið.
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson leikur auðvitað fyrir Everton. Hann gæti því orðið samherji Marcelo á næstu leiktíð, ef marka má frétt Mirror.