fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Einkalíf Rúriks á forsíðum allra stærstu blaða: Sannleikurinn um meint framhjáhald opinberaður

Ritstjórn DV
Föstudaginn 11. júní 2021 08:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúrik Gíslason fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu var í gær sakaður um að hafa haldið framhjá fyrirsætunni Nathalia Soliani sem verið hefur unnusta hann í tæpr þrjú ár. Allir stærstu fjölmiðlar Þýskalands fjalla um málefni Rúriks í dag og meint framhjáhald hans. Eitt allra stærsta dagblað Þýskalands kveður þær kjaftasögur í kútinn um að Rúrik hafi haldið framhjá Soliani.

Í Bild kemur fram að Rúrik hafi slitið sambandi sínu við Soliani áður en hann hóf að taka þátt í Let´s Dance í Þýskalandi. Rúrik varð að stórstjörnu í Þýskalandi í þáttunum og vann að lokum keppnina, fleiri milljónir manna horfðu á hvern einasta þátt.

Soliani steig fram í fyrradag og fór að saka Rúrik um framhjáhald á Instagram síðu sinni. Athygli hefur vakið að hún fylgir Rúrik ekki lengur á samfélagsmiðlum og þá hefur hún eytt öllum myndum af honum á Instagram.

Samkvæmt Bild eru hins vegar nokkrir mánuðir síðan að Rúrik sleit sambandinu við Soliani og hann virðist hafa fundið ástina á nýjan leik. Samkvæmt þýskum miðlum og Soliani er Rúrik nú staddur í Grikklandi með Valentina Pahde sem einnig keppti í þáttunum.

„Samband þeirra hefur þróast síðustu vikur, þú fannst það að það var eitthvað í gangi á milli þeirra,“ sagði starfsmaður á bak við tjöldin í Let´s Dance þáttunum við Bild.

Hvorki umboðsfólk Rúriks eða Pahde vildu ræða málið við þýska miðla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum
Hartman í Val
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti
433Sport
Í gær

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður
433Sport
Í gær

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni