fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Sögulegur sigur United – Þetta eru metin sem liðið jafnaði í gær

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 3. febrúar 2021 10:15

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United valtaði yfir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær en þeir léku manni færri í 88. mínútur þar sem Alexandre Jankewitz var rekinn af velli eftir tveggja mínútna leik eða 79 sekúndur öllu heldur, Aron Wan-Bissaka skoraði fyrsta mark Manchester United á 18. mínútu og bætti svo Marcus Rashford við því öðru á 25. mínútu.

Jan Bednarek varð svo fyrir því óhappi að skora sjálfsmark á 34. mínútu og skoraði Edinson Cavani fjórða mark United og staðan 4-0 í hálfleik.

Manchester United hélt markaskoruninni áfram í seinni hálfleik og skoraði Anthony Martial á 69. mínútu og bætti svo Scott McTominay við því sjötta á 71. mínútu, Jan Bednarek gerði sig svo brotlegann í eigin teig og var rekinn af velli fyrir vikið, Bruno Fernandes skoraði svo mark úr víti á 88. mínútu og Anthony Martial bætti svo við áttunda marki United á 90. mínútu og innsiglaði svo Daniel James 9-0 sigur Manchester United með marki á fjórðu mínútu uppbótatíma.

Lokatölur 9-0 fyrir Manchester United sem eru jafnir stigum Manchester City á toppnum en þeir eiga tvo leiki til góða.

Sigurinn er nokkuð sögulegur en þetta er í þriðja sinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem lið vinnur með níu mörkum. Manchester United hafði gert það gegn Ipswich árið 1995 og Leicster vann Southampton með níu mörkum fyrir einu og hálfi ár.

Sjö leikmenn Manchester United skoruðu í leiknum, það er aðeins í annað sinn sem sjö leikmenn hjá liði skora í einum og sama leiknum. Bruno Fernandes, Aaron Wan-Bissaka, Marcus Rashford, Edinson Cavani, Daniel James og Scott McTominay skoruðu eitt mark en Anthony Martial skoraði tvö, eitt markanna var svo sjálfsmark.

United skoraði tólf mörk í tveimur leikjum gegn Southampton á þessu tímabili, það er jöfnun á meti.

Luke Shaw lagði svo upp tvö mörk í fyrri hálfleik, það voru jafn margar stoðsendingar og í 45 leikjum þar á undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fyrirliði Tottenham sagður bera einhverja ábyrgð á atvikinu í gær – Bað hann um skiptingu?

Fyrirliði Tottenham sagður bera einhverja ábyrgð á atvikinu í gær – Bað hann um skiptingu?
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valverde hakkaði City í sig – PSG í góðum málum og ævintýrið heldur áfram í Noregi

Valverde hakkaði City í sig – PSG í góðum málum og ævintýrið heldur áfram í Noregi
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum í beinni útsendingu – Er á leið í aðgerð

Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum í beinni útsendingu – Er á leið í aðgerð
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Havertz bjargaði jafntefli fyrir Arsenal með marki af vítapunktinum

Havertz bjargaði jafntefli fyrir Arsenal með marki af vítapunktinum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Í gær

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal