fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Fleiri íslenskar stelpur voru í samskiptum við stjörnur Englands – „Ég fór ekki á hótelið“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 7. september 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ensku landsliðsmennirnir Phil Foden og Mason Greenwood voru í sambandi við fleiri hér á landi en stúlkurnar tvær sem komu á hótelið þeirra í gær. DV hefur fengið það staðfest frá stúlku sem var í sambandi við þá félaga um helgina.

Foden og Greenwood voru reknir úr enska landsliðinu í dag eftir að hafa fengið tvær íslenskar stúlkur á hótel sitt í gær. Um var að ræða brot á sóttvarnareglum sem gilda um íþróttalið. Leikmönnum er með öllu bannað að hitta aðra en eru með í ferðalaginu. Leikmennirnir komu báðir við sögu í 0-1 sigri Englands á Íslandi á laugardag.

Stúlkan sem um ræðir hefur birst í myndbandi sem stórar erlendar fjölmiðlar hafa nú birt. Ekki er um að ræða þær stúlkur sem fóru á Hótel Sögu í gær. Samkvæmt enskum blaðamanni sem DV ræddi við í dag leikur grunur á að Foden og Greenwood hafi komist í samskipti við stelpurnar í gegnum Tinder og þaðan hafi samskiptin farið yfir á Snapchat.

Meira:
Enskir landsliðsmenn brutu reglur hér á landi í gær – Fengu íslenskar stúlkur upp á hótel

Stúlkan sem blaðamaður DV ræddi við fullyrti að hún hefði ekki farið á hótelið til að hitta Foden og Greenwood en samskipti þeirra virðast vera frá því á laugardag. ,,Við vorum að fokkast í þeim. Ég fór ekki á hótelið, ég hef ekkert að segja,“ sagði stúlkan í samtali við blaðamann DV en hún var í samfloti með vinkonu sinni þegar samskiptin áttu sér stað.

Í þeim samskiptum sem DV hefur undir höndum er Phil Foden að tala við íslenska stelpuna í síma og sendir henni svo mynd af sér í gegnum Snapchat á hótelinu. ,,Hvað er planið? Við getum komið á hótelið, en ég veit ekki hvernig þið ætlið að lauma okkur inn,“ segir stúlkan í myndbandinu sem nú fer eins og eldur um sinu á Twitter.

,,Hvað ætlið þið að gera á hótelinu?,“ svarar Phil Foden.  ,,Hvað heldur þú vinur?,“ segir stúlkan. Í öðru myndbandi sem DV hefur undir höndum er Foden að senda þessari sömu stúlku Snapchat skilaboð þar sem hann sést vel og greinilega.

Myndin sem Foden sendi stelpunni

Ljóst er að Foden og Greenwood voru með einbeittan brotavilja, þeir voru meðvitaðir um þær reglur sem eru í gildi.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum
Hartman í Val
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti
433Sport
Í gær

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður
433Sport
Í gær

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni