fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433Sport

Vika til að leysa krísuna

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 29. september 2020 09:55

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur tæpa viku til að leysa vandamálin í leikmannahópi sínum, losa þá sem Ole Gunnar Solskjær hefur ekki not fyrir og fá inn nýja leikmenn.

Sagan endalausa um Jadon Sancho heldur áfram en Manchester United hefur reynt í allt sumar reynt að fá hann frá Borussia Dortmund. Verðmiðinn sem Dortmund setur á hann hefur hins vegar verið of hár að mati Ed Woodward stjórnarformanns Manchester United.

Ensk blöð segja að United sé að leggja fram 90 milljóna punda tilboð en Dortmund vill 105 milljónir punda og ekki krónu minna.

Sagt var frá því í gær að Ismaila Sarr kantmaður Watford sé næstur á lista United ef ekki tekst að fá Sancho, hann er til sölu fyrir um 45 milljónir punda.

Krísan í varnarleik liðsins er mikið til umræðu en stuðningsmenn félagsins vilja fá miðvörð en Solskjær horfir mest til þess að fá vinstri bakvörð.

United ætlar einnig að reyna að losa sig við nokkra leikmenn en Andreas Pereira er að ganga í raðir Lazio, líklega verður Chris Smalling seldur til Roma og AC Milan reynir að fá Diogo Dalot.

Þá eru bæði Marcos Rojo og Sergio Romero til sölu en hvorugur hefur vakið áhuga liða í sumar, þar spila laun þeirra stærsta hlutverkið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Andri Lucas Guðjohnsen í einlægu viðtali – Þetta er það sem pabbi hans sagði honum er hann var ungur

Andri Lucas Guðjohnsen í einlægu viðtali – Þetta er það sem pabbi hans sagði honum er hann var ungur
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Kristján segir dómara landsins skíthrædda við Víkinga – „Þetta er bara galið“

Kristján segir dómara landsins skíthrædda við Víkinga – „Þetta er bara galið“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fer sennilega í sumar og nú er nýtt félag komið í umræðuna

Fer sennilega í sumar og nú er nýtt félag komið í umræðuna
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Myndband af stuðningsmönnum United fer eins og eldur í sinu – Sjáðu þegar þeir áttuðu sig á því að þeir hefðu gert stór mistök

Myndband af stuðningsmönnum United fer eins og eldur í sinu – Sjáðu þegar þeir áttuðu sig á því að þeir hefðu gert stór mistök
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Silva staðfestir að hann sé búinn að taka ákvörðun – ,,Fáið að vita það á næstu dögum“

Silva staðfestir að hann sé búinn að taka ákvörðun – ,,Fáið að vita það á næstu dögum“
433Sport
Í gær

Sagður vera með tvö tilboð á borðinu frá enskum liðum – Hafnaði einu fyrr í vetur

Sagður vera með tvö tilboð á borðinu frá enskum liðum – Hafnaði einu fyrr í vetur