Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður AIK, kom inn á sem varamaður á 70. mínútu í 1-0 sigri liðsins á Mjallby í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Það var Nabil Bahoui sem skoraði eina mark liðsins á 93. mínútu.
AIK er eftir leikinn í 12. sæti deildarinnar með 24 stig.
AIK 1 – 0 Mjallby
1-0 Nabil Bahoui (’90+3)