Einn leikur fór fram í Pepsi-Max deild kvenna í kvöld. Stjarnan gerði góða ferð í Vesturbæinn og fóru með sigur af hólmi gegn KR. Lokatölur 0-2 sigur Stjörnunnar
Angela Pia Caloia kom Stjörnunni yfir á 31. mínútu.
Aníta Ýr Þorvaldsdóttir tvöfaldaði síðan forystu Stjörnunnar á 41. mínútu eftir fyrirgjöf frá Betsy Doon Hassett.
Stjarnan situr eftir leikinn í 5. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 15 leiki. KR er hins vegar á botni deildarinnar með 10 stig eftir 12 leiki.
KR 0-2 Stjarnan
0-1 Angela Pia Caloia (’31)
0-2 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir (’41)