Pep Guardiola stendur frammi fyrir miklum meiðslavandræðum hjá Manchester City fyrir leik helgarinnar gegn Leicester City. Framherjinn Gabriel Jesus er nýjasta viðbótin á meiðslalistanum.
,,Staðan er þannig að við erum aðeins með 13 leikmenn úr aðalliðinu til taks núna. Við þurfum að fylla upp í hópinn með leikmönnum úr akademíunni,“ sagði Guardiola í viðtali.
Einn af þeim leikmönnum sem hefur fengið tækifæri úr akademíunni er hinn 17 ára gamli Liam Delap, hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Manchester City á dögunum. Liam er sonur Rory Delap sem lék á sínum tíma með Stoke City í ensku úrvalsdeildinni.
Meðal þeirra leikmanna sem vantar hjá Manchester City eru Sergio Aguero, Ilkay Gundogan, Bernardo Silva og Joao Cancelo.
Manchester City tekur á móti Leicester City á sunnudaginn klukkan 15:30.