Chelsea hefur staðfest kaup sín á Edouard Mendy frá Rennes fyrir um 20 milljónir punda en hann hefur skrifað undir fimm ára samning.
Mendy er ætlað að taka stöðu markvarðar í liði Chelsea en Kepa Arrizabalaga hefur ollið miklum vonbrigðum.
Kepa er dýrasti markvörður sögunnar en mistök hans hafa verið mörg og Frank Lampard hefur ekki meiri þolinmæði fyrir mistökum Kepa.
Mendy er mættur til Chelsea eftir að Petr Cech fyrrum markvörður Chelsea og Rennes mælti með honum. „Ég er svo ánægður með að vera í herbúðum Chelsea, það er draumur fyrir mig að koma í þenann hóp,“ sagði Mendy.
Mendy er 28 ára gamall en kaup Chelsea hafa legið í loftinu síðustu vikur.