Zlatan Ibrahimovic framherji AC Milan hefur greinst með kórónuveiruna en þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Zlatan sem kallar sjálfan sig iðulega ljón greindist með veiruna í dag en AC Milan staðfestir þetta.
Zlatan skoraði tvívegis í sigri Milan á Bologna um helgina en þarf nú að fara í einangrun á meðan hann er með veiruna. Zlatan virðist ekki hafa smitað samherja sína af veirunni en þessi 38 ára Svíi er ekki með mikil einkenni.
Ljónið hefur átt frábæran feril um alla Evrópu og virðist hvergi nærri hættur á vegferð sinni. Gary Lineker sjónvarpsmaður á BBC hefur ákveðið að biðja fyrir kórónuveirunni. „Zlatan hefur greinst með veiruna, hugur minn er hjá veirunni á þessum erfiðu tímum,“ skrifar Lineker.
News that @Ibra_official has tested positive with Coronavirus. Thoughts are with the virus at this difficult time.
— Gary Lineker (@GaryLineker) September 24, 2020