Tveir leikir voru að klárast í Lengjudeild karla. Grindavík vann sterkan 1-2 útisigur á Fram í leik þar sem tvö rauð spjöld fóru á loft. Þá vann Afturelding góðan 1-0 sigur á Víking Ólafsvík.
Á Framvelli tóku heimamenn á móti Grindavík. Aron Jóhannsson kom gestunum yfir á 30. mínútu. Alexander Már Þorláksson jafnaði leikinn fyrir fram á 50. mínútu.
Tvö rauð spjöld fóru á loft í seinni hálfleik. Gunnar Þorsteinsson, leikmaður Grindavíkur var rekinn af velli á 81. mínútu. Unnar Steinn Ingvarsson, leikmaður Fram var síðan sendur í sturtu á 87. mínútu.
Grindvíkingar náðu að skora sigurmark leiksins á 90. mínútu og var þar að verki Bjartur Hallsson. Grindavík eru eftir leikinn í 6. sæti með 26 stig. Framarar sitja í 3. sæti deildarinnar með 33 stig.
Í Mosfellsbæ tóku heimamenn í Aftureldingu á móti Víking Ó. Kári Hlífarsson, leikmaður Aftureldingar skoraði eina mark leiksins á 32. mínútu. Lokastaðan 1-0 sigur Aftureldingar.
Afturelding situr í 8. sæti deildarinnar með 21 stig. Víkingur Ó. er í 9. sæti með 16 stig.
Fram 1-2 Grindavík
0-1 Aron Jóhannsson (’30)
1-1 Alexander Már Þorláksson (’50)
1-2 Sigurður Bjartur Hallsson (’90)
Rautt spjald: Gunnar Þorsteinsson, Grindavík (’81)
Unnar Steinn Ingvarsson, Fram (’87)
Afturelding 1-0 Víkingur Ólafsvík
1-0 Kári Hlífarsson (’32)