ÍA færðist fjær botnsætunum í Pepsi-Max deild karla er þeir sigruðu Gróttu á Akranesi í kvöld.
Tryggvi Hrafn Haraldsson kom ÍA yfir á 26. mínútu er hann skoraði beint úr hornspyrnu. Það var síðan Steinar Þorsteinsson sem skoraði annað mark ÍA á 82. mínútu eftir fyrirgjöf frá Gísla Laxdal Unnarssyni. Skagamenn fengu síðan vítaspyrnu á 87. mínútu, Tryggvi Hrafn tók spyrnuna og skoraði þriðja mark ÍA.
Skagamenn eru eftir leikinn með 17 stig í 7. sæti deildarinnar þegar þetta er skrifað. En Grótta situr í 11. sæti, sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni.
ÍA 3-0 Grótta
1-0 Tryggvi Haraldsson (’26)
2-0 Steinar Þorsteinsson (’82)
3-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson (’87)