Andros Townsend kom Crystal Palace yfir þegar aðeins 7 mínútur voru liðnar af leiknum og var útiliðið 0-1 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik náði Wilfried Zaha að koma Crystal Palace í tveggja marka forystu en hann skoraði úr víti.
6 mínútum síðar náði Donny van de Beek að minnka muninn fyrir Manchester United en Zaha svaraði því með því að skora annað mark, þriðja mark Palace í leiknum. Fleiri mörk voru ekki skoruð eftir þetta og var lokaniðurstaðan því 1-3 sigur Crystal Palace.