Tottenham birti viðtal við Bale á Twitter-síðu sinni í dag. Þar sagðist Bale vera glaður með að vera kominn aftur í Tottenham. „Þetta félag er mér svo sérstakt, hérna varð ég að leikmanni. Magnaður klúbbur og magnaðir stuðningsmenn. Það er bara ótrúlegt að vera kominn aftur,“ sagði Bale í viðtalinu og bætti við að vonandi geti hann unnið bikara með liðinu. „Ég er hungraður, ég vil gera góða hluti með liðinu.“
Tottenham tilkynnti einnig um kaup á öðrum leikmanni Real Madrid á Twitter-síðu sinni í dag. Það er hinn 23 ára gamli Sergio Reguilon.
💙 @GarethBale11 on coming home… #BaleIsBack ⚪️ #COYS pic.twitter.com/I6kl7gX5Zf
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) September 19, 2020