Thiago Alcantara lenti í Manchester fyrir skömmu og hélt yfir til Liverpool þar sem hann fer í læknisskoðun á æfingasvæði Liverpool. Líklega verður Thiago kynntur til leiks í dag eða á morgun á Anfield.
Paul Joyce sem er vel tengdur Liverpool er einn af þeim sem segir frá, Liverpool kaupir Thiago sama hvort félagið selji miðjumann eða ekki. Thiago hefur verið orðaður við Liverpool síðustu vikur en hann hefur ekki viljað skrifa undir samning við FC Bayern. Thiago á bara ár eftir af samningi sínum.
Liverpool borgar 20 milljónir punda til að byrja með og 5 milljónir punda í bónusum.
Ætla má að Thiago hlaupi beint inn í byrjunarlið Liverpool en hann var í sjö ár hjá Bayern en áður lék Spánhverjinn með Barcelona.