Tveir leikir eru á dagskrá í Lengjudeildinni í kvöld. Víkingur Reykjavík tók á móti Augnabliki og Grótta tók á móti Keflavík. Báðir leikirnir áttu að hefjast klukkan 19:15. Færa þurfti leik þeirra síðarnefndu á Kópavogsvöll vegna bilana í flóðljósum á heimavelli Gróttu. Sá leikur hófst klukkan 20:15 og er staðan jöfn 1-1 í hálfleik.
Í Víkinni fór Augnablik með sigur af hólmi. Á 12. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Þar var að verki Birta Birgisdóttir fyrir Augnablik eftir undirbúning frá Þórhildi Þórhallsdóttur. Víkingur jafnaði metin á 15. mínútu. Augnablik komst aftur yfir á 35. mínútu. Þar var að verki Hildur María Jónasdóttir eftir undirbúning Ísafoldar Þórhallsdóttur. Þriðja mark Augnabliks skoraði Ísafold Þórhallsdóttir á 49. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki.
Liðin eru í sjötta og sjöunda sæti. Augnablik er með 18 stig og Víkingur með 15 stig.
Víkingur R. 1 – 3 Augnablik
0-1 Birta Birgisdóttir (12′)
1-1 Markaskorara vantar (15′)
1-2 Hildur María Jónasdóttir (35′)
1-3 Ísafold Þórhallsdóttir (49′)