fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433Sport

Talið ólíklegt að Rúnar Alex verði á bekknum hjá Arsenal um helgina

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 17. september 2020 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúnar Alex Rúnarsson er að ganga frá samningi við Arsenal og ætti það klárast á allra næstu dögum. Sky Sports segir að ólíklegt sé þó að það náist að klára allt í dag.

Dijon og Arsenal hafa náð samkomulagi um kaupverðið en samkvæmt heimildum 433.is hækka laun Rúnars all verulega við skiptin.

Rúnar Alex mun skrifa undir fimm ára samning við Arsenal, fjögurra ára til að byrja með en með möguleika á fimmta árinu.

Arsenal þarf að klára félagaskiptin fyrir hádegi á morgun til að Rúnar Alex geti verið í hóp gegn West Ham. Félagið seldi Emiliano Martinez í vikunni og á Rúnar Alex að taka hans stöðu. Matt Macey verður því líklega á bekknum og Bernd Leno í markinu um helgina.

Ensk blöð telja að Rúnar Alex gæti þreytt frumraun sína með Arsenal strax í næstu viku þegar Arsenal mætir Leicester í enska deildarbikarnum. Algengt er að varamarkvörður og menn sem spila minna byrji leiki í deildarbikarnum.

Árið 2014 fór Rúnar til danska liðsins Nordsjælland frá KR en þá var hann aðeins 18 ára gamall. Árið 2018 fór Rúnar frá danska liðinu og yfir til Frakklands í Dijon.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“