Tottenham er á barmi þess að fá Gareth Bale og Sergio Reguilon frá Real Madrid en fjöldi erlendra miðla fjallar um málið.
Manchester United hafði síðustu daga rætt við Real Madrid um kaup á vinstri bakverðinum Reguilon. United vildi hins vegar ekki setja klásúlu um að Real Madrid gæti keypt hann til baka.
Tottenham gekk að þeim kröfum Real Madrid og er Reguilon því að ganga í raðir Tottenham eftir vel heppnaða dvöl hjá Sevilla á síðustu leiktíð.
Reguilon er mættur í læknisskoðun hjá Tottenham og gæti gengið frá samningi við félagið í dag.
Tottenham er svo á barmi þess að fá Gareth Bale á láni, Real Madrid vill losna við hann af launaskrá. Talið er að það kosti Tottenham 20 milljónir punda að fá hann á láni í eitt ár.
Bale átti frábæran tíma hjá Tottenham áður en hann fór til Real Madrid árið 2013 þar sem hann vann Meistaradeildina í þrígang.
BREAKING: Sergio Reguilon is having his Tottenham medical in Madrid.
— Sky Sports News (@SkySportsNews) September 17, 2020