Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.
Samningurinn mun færa framherjanum 250.000 pund á viku hið minnsta. Ákvæði um bónusgreiðslur í samningnum gætu hins vegar skilað Aubameyang yfir 350.000 pundum á viku. Það eru um það bil 61 milljón íslenskra króna á núverandi gengi.
Það gerir leikmanninn að einum launahæsta leikmanni Arsenal, ásamt Mezut Özil. Þetta kemur fram í umfjöllun The Daily Mail.
Aubameyang átti aðeins eitt ár eftir af sínum gamla samningi. Það er því mikið fagnaðarefni fyrir Arsenal að hafa náð samningum við hann á ný.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var að vonum ánægður eftir að samningar höfðu náðst við leikmanninn.
,,Hann er mikilvægur leiðtogi fyrir liðið, og stór partur af því sem við erum að byggja upp hérna. Hann vill vera meðal bestu leikmanna í heimi, hann getur náð því hér,“ sagði Arteta.
✍️ Pierre-Emerick Aubameyang has signed a new three-year contract!
❤️ @Aubameyang7
— Arsenal (@Arsenal) September 15, 2020