Myndin sem um ræðir virðist sýna risastór kynfæri markmannsins, þá einna helst lim hans. Hvort um sé að ræða kynfæri markmannsins á myndinni eða bara skugga þá hafa stuðningsmenn Chelsea hafa gert stólpagrín að Kepa eftir að myndin kom út þar sem markmaðurinn hefur ekki staðið sig vel undanfarið.
Einn stuðningsmaður sagði að hann gæti ekki skutlað sér því þyngdin sé of mikil. „Kannski hann ætti að reyna að nota þetta til að verja boltann frekar en hendurnar,“ sagði annar stuðningsmaður. „Er hann með snák í stuttbuxunum?“ spurði enn annar.
Hér fyrir neðan má sjá myndina sem um ræðir:
Kepa kom toil Chelsea frá spænska félaginu Athletic Bilbao árið 2018 fyrir 71 milljón punda. Hann hefur, eins og áður segir, ekki staðið sig nógu vel og vildi Chelsea kaupa nýjan markmann fyrir tímabilið sem hófst um helgina. Það náðist þó ekki og heldur Kepa því sínu sæti sem aðalmarkvörður félagsins.