Þau Sergio og Stanbyrt hafa verið afar dugleg við að deila myndum af hvoru öðru á Instagram-síðum sínum undanfarið. Af myndunum sem þau deila á samfélagsmiðlinum að dæma eru þau búin að vera að ferðast mikið á síðustu dögum. Þau virðast þessa stundina vera stödd í London á Englandi en áður hafa þau deilt myndum af sér í Saint-Tropez á Frakklandi og í Las Vegas í Bandaríkjunum.
https://www.instagram.com/p/CDeyJZmnGWD/
Stanbury er afar efnuð en hún er metin á 30 milljónir bandaríkjadala, það eru um 4 milljarðar í íslenskum krónum. Hún er hvað þekktust fyrir að vera stjarnan í raunveruleikaþættinum Ladies of London sem sýndur var í Bandaríkjunum. Hún skildi nýverið við fjárfestinn Cem Habib sem er einnig metinn á tugi milljóna bandaríkjadala.
Stanbury segir að hún og Habib hafi skilið í góðu og að hún vonist til þess að þau verði afar góðir vinir áfram. „Ég veit að þetta hljómar klisjukennt en við vorum bara að stefna í sitt hvora áttina. Við höfðum ekki gaman að sömu hlutum og við fórum ekki einu sinni í frí saman lengur,“ sagði Stanbury um skilnaðinn í samtali við Bravo. Stanbury og Habib eiga þrjú börn saman, dótturina Yasmine og tvíburana, Aaron og Zac.
https://www.instagram.com/p/B6gEuVMHLEI/
Eins og áður segir hefur Stanbury verið að rugla reitum með nokkrum stórstjörnum í gegnum tíðina. Stanbury var til að mynda að hitta knattspyrnugoðsögnina Ryan Giggs, sem spilaði með Manchester United. Þegar Giggs og Stanbury voru að hittast var Giggs á sama tíma í sambandi með Stacey Cooke, sem átti eftir að verða eiginkona Giggs, og síðar fyrrum eiginkona hans.
Þegar Stanbury vann við markaðssetningu kynntist hún kvikmyndastjörnunni Hugh Grant, sem leikið hefur í myndum á borð við About a Boy, Notting Hill og Love Actually. Stanbury og Grant áttu í leynilegu ástarsambandi í smá tíma. Grant er þó ekki eina kvikmyndastjarnan sem Stanbury er sögð hafa verið með en Sylvester Stallone, sem er hvað þekktastur fyrir Rocky myndirnar, er einnig nefndur sem fyrrverandi maki Stanbury í grein The Sun um hana.
Þá var Stanbury einnig í sambandi með Bretaprinsinum Andrew skömmu eftir skilnað prinsins. Stanbury og Bretaprinsinn fóru saman í veislu til Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseta og konu hanss, Hillary Clinton. Andrew hefur vakið mikla athygli undanfarið eftir að upp kom um skjöl sem tengdu hann við níðinginn Jeffrey Epstein. Andrew Bretaprins tjáði sig í löngu viðtali við BBC í fyrra um kynni sín af Epstein og ásakanir um að hann hafi haft mök við ungar stúlkur.