fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Jónas segir þetta skjóta skökku við – „Þá er það ekki jafnrétti“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 20. ágúst 2020 17:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri KR, er ekki sáttur eftir að nýjustu fréttir varðandi vinnusóttkví voru birtar í dag.

„Það virðist ekki jafnt yfir alla ganga. Við KR-ingar erum ósáttir við að sitja ekki við sama borð og aðrir þegar verið er að leysa úr málefnum fótboltans,“ sagði Jónas í samtali við Fótbolta.net. KR-liðið er í sóttkví eftir ferðalag til Skotlands en þar keppti liðið við Celtic. Nýju reglurnar segja að lið þurfi að sækja um vinnusóttkví fyrir fram til að fá að æfa í sóttkvíinni.

Þar sem reglurnar um vinnusóttkví voru ekki komnar áður en KR-liðið fór til Skotlands þá gat félagið ekki sótt um vinnusóttkví. „Þegar verið er að leysa hlutina fyrir suma en ekki hina þá er það ekki jafnrétti,“ segir Jónas. „Við getum hvorki æft né keppt og Pepsi Max-deildin er í uppnámi. Á meðan er fundin leið svo erlend félög geta komið hingað og keppt en íslensk lið geta ekki mæst. Okkur finnst þetta skjóta skökku við.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Algjör U-beygja hjá Xavi

Algjör U-beygja hjá Xavi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt