Willian, sem er 32 ára, hefur verið í Chelsea undanfarin ár vildi fá að vera þar en hann bað um að fá þriggja ára samning við félagið. Chelsea bauð honum þó bara tveggja ára samning og vildi Willian því leita annað.
Arsenal bauð honum þá samning til þriggja ára, eins og hann vildi, og talið er að hann fái um 22o þúsund pund á viku eða tæpar 36 milljónir í íslenskum krónum.
Willian er mjög ánægður með skiptin og segir að þjálfari Arsenal, Mikel Arteta, muni láta liðið berjast um titla í Englandi og í Evrópu. „Hann sagði mér fullt af góðum hlutum og þess vegna fór ég til Arsenal.“