„Maður var nýbyrjaður í starfi og manni fannst aðeins kippt undan manni fótinum. Þetta er heimurinn sem við lifum í dag. Við erum sáttir við hvernig við nýttum þessa daga og erum fullir tilhökkunar að byrja að spila,“ sagði Eiður Smári í viðtalinu en Fótbolti.net vakti athygli á því.
Á morgun spilar FH við KR í Vesturbænum og síðan er næsti leikur liðsins á mánudaginn gegn Stjörnunni. FH á því framundan tvo erfiða leiki en KR og Stjarnan eru hluti af þeim liðum sem þykja hvað líklegust til að vinna deildina.
„Það skemmtilegasta í boltanum er að spila leiki og við sjáum hvar við stöndum núna gegn einu af sterkustu liðunum. Það er áskorun fyrir okkur sem þjálfarateymi og sem lið,“ segir Eiður um leikina sem eru framundan. „Hverjir erum við og hvar ætlum við að vera sem lið? Þú kemst ekki á toppinn nema með því að taka á móti sterkustu liðunum. Þetta er spennandi og skemmtilegt. Stærstu leikirnir eru leikirnir sem við viljum spila.“
FH hefur fengið góðan liðstyrk í félagsskiptaglugganum en þeir Eggert Gunnþór Jónsson og Ólafur Karl Finsen eru báðir nýlega komnir í FH. Það gæti því verið að þeir spili báðir sinn fyrsta leik fyrir liðið á morgun.
Eiður segir að Eggert hafi komið frábærlega inn í liðið og að þeir taki varla eftir honum. Það er gott í því samhengi að okkur líður eins og hann hafi verið hérna alltaf. hann hefur komið inn í klefann, aðlagast fljótt og æft af krafti. Við vitum hvað við fáum frá Eggerti á næstu árum,“ segir Eiður. Þá segir hann að Ólafur sé sérstök týpa. „En við vitum hvað hann kann í fótbolta og ef það verða fyrirsagnirnar, hvað hann kann í fótbolta, þá höfum við unnið okkar starf.“