„FH hefur náð samkomulagi við Ólaf Karl Finsen um að leika með félaginu út tímabilið 2020 að láni frá Val,“ segir í tilkynningu FHinga á Facebook. Þá þakkar FH Val fyrir fagleg vinnubrögð vegna vistaskipta Ólafs út tímabilið.
Í síðustu viku leit ekki út fyrir að Ólafur færi í FH þar sem Logi Ólafsson, annar þjálfara FH, sagði að Valur vildi ekki leyfa honum að fara. „Fyrst vorum við ekki á bannlista því við vorum svo neðarlega,“ sagði Logi um ástæðuna fyrir því. „Mér skilst að Valur vilji ekki setja hann í sína helstu samkeppnisaðila, Breiðablik, KR, Stjarnan og eitthvað svoleiðis. Svo var FH sett á bannlistann líka.“ Það virðist þó vera sem Valur hafi tekið FH af bannlistanum þar sem Ólafur komst að lokum í FH.