Atalanta byrjaði leikinn betur og komst yfir um miðjan fyrri hálfleik með marki frá Mario Pašalić. Undir lok leiksins leit út fyrir að Atalanta myndi sigla sigrinum í höfn þar sem PSG virtist ekki ætla að ná að skora. Á 90. mínútu leiksins nær þó varnarmaðurinn Marquinhos að pota boltanum inn fyrir PSG. Virtist vera sem leikurinn myndi þá fara í framlengingu en Eric Maxim Choupo-Moting náði að koma boltanum í net Atalanta í uppbótartíma.
Lokaniðurstaðan því 1-2 fyrir PSG sem er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar.