Pelé, einn besti knattspyrnumaður allra tíma, á metið yfir flest mörk skoruð á ferlinum. Pelé skoraði hvorki meira né minna en 1286 mörk í 1363 leikjum en 519 af þessum mörkum voru skoruð í vináttuleikjum og telja því ekki í heimsmetinu. Pelé er engu að síður efstur með 767 mörk en nú lítur allt út fyrir að Ronaldo nái því meti.
Ronaldo er nú kominn upp í 737 mörk og vantar hann því einungis 30 mörk til að ná meti Pelé. Ronaldo er enn í fullu fjöri þrátt fyrir að vera orðinn 35 ára gamall en hann sagði nýlega að hann gæti spilað þangað til hann er orðinn fertugur. Ef Ronaldo nær metinu þá er þó annar sem gæti náð því líka.
Það er að sjálfsögðu Lionel Messi en hann situr þessa stundina í fimmta sæti listans yfir flest mörk skoruð með 717 mörk. Messi er tveimur árum yngri en Ronaldo og því gæti hann mögulega spilað lengur og reynt við metið líka.