Manchester United 1-0 FCK
Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson var ekki í hóp FCK í kvöld vegna meiðsla en liðsfélagar hans náðu að standa í sterku liði Manchester United þrátt fyrir það. Að 90 mínútum loknum var hvorugt liðana búið að skora mark en Man.Utd. var töluvert meira með boltann. Vegna kórónuveirunnar eru nú leikir aðeins spilaðir einu sinni en ekki tvisvar eins og það var áður í Evrópudeildinni og því þurfti að fara í framlengingu eftir 90 mínútur.
Miðjumaðurinn Bruno Fernandes, sem hefur verið að gera afar góða hluti með Manchester United síðan hann kom í janúar, náði að koma sínum mönnum yfir snemma í fyrri hálfleik framlengingarinnar. Fernandes skoraði úr víti og kom liðsfélögum Ragnars í erfiða stöðu. Mörkin í leiknum urðu ekki fleiri og endaði leikurinn því með sigri Manchester United. Ragnar og félagar eru því úr leik í Evrópudeildinni.
Inter 2-1 Bayern Leverkusen
Inter náði forystu snemma í leiknum með marki frá Nicolò Barella. Romelu Lukaku bætti síðan muninn skömmu síðar. Miðjumaðurinn eftirsótti, Kai Havertz, var þó ekki lengi að minnka muninn fyrir Bayern Leverkusen en það gerði hann einungis þremur mínútum eftir að Lukaku skoraði. Bayern Leeverkusen náði þó ekki að skora annað mark í leiknum og raunar náði Inter ekki að gera það heldur. Lokaniðurstaðan var því 2-1 fyrir Inter sem er nú komið í undanúrslitin.