Jonathan Barnett, umboðsmaður Jack Grealish, harðneitar því að hann sé búinn að semja við Manchester United.
Grealish er oft orðaður við United en síðar í kvöld þá spilar hann með Aston Villa gegn einmitt Rauðu Djöflunum.
Villa er í harðri fallbaráttu og er það eina sem Grealish er að einbeita sér að.
,,Það er ekki búið að ná samningum við neinn. Ég held að Aston Villa sé ekki að stefna á Championship-deildina,“ sagði Barnett við Stretty News.
,,Þeir trúa því að þeir komist úr þessum vandræðum sem þeir eru í. Jack berst fyrir því að stöðva þetta. Það er það eina sem hann hugsar um.“
,,Hann hefur ekki áhuga á neinu nema að berjast og koma Aston Villa úr vandræðum.“