Ashley Cole, fyrrum leikmaður Arsenal, er mjög hrifinn af vinstri bakverðinum Kieran Tierney hjá Arsenal.
Tierney kostaði 25 milljónir frá Celtic en hann byrjaði erfiðlega og var mikið meiddur.
Cole hefur þó verið hrifinn af Tierney undanfarið og segir hann vera besta varnarmann liðsins.
,,Það var búist við miklu af honum þegar hann kom. Hann var frábær hjá Celtic,“ sagði Cole við Sky.
,,Hann kom meiddur og byrjaði ekki tímabilið en núna er hann að komast í form á ný.“
,,Að mínu mati hefur hann verið stjarnan í vörn Arsenal. Hvort hann sé að spila í þriggja manna línu eða í vinstri bakverði.“