Pep Guardiola, stjóri Manchester City, er ekki mikill aðdáandi vatnspásunnar sem er notuð á Englandi í dag.
Lið í úrvalsdeildinni taka sér smá tíma í hverjum hálfleik og fá sér að drekka á hliðarlínunni.
Guardiola vonar að þetta sé ekki komið til að vera en hvort reglan verði notuð á næstu leiktíð er óvíst.
,,Nei ég held að þetta sé óþarfi. Ég held að þetta sé þarna því lið fengu takmarkaðan undirbúning eða þrjár vikur og kannski líka vegna veðursins,“ sagði Pep.
,,Þjálfararnir nota þetta auðvitað bara til að tala við leikmennina.“