Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, fékk orð í eyra frá dómaranum Paul Tierney um helgina.
Tierney sá um að dæma leik Liverpool og Aston Villa sem lauk með 2-0 sigri heimamanna á Anfield.
Klopp var ósáttur í leiknum eftir að Georginio Wijnaldum hafði fallið til jarðar og heimtaði aukaspyrnu.
Tierney var nálægt atvikinu en ákvað að dæma ekki neitt sem fór í skapið á Þjóðverjanum.
,,Ég missti af þessu Jurgen. Ég er eins og leikmennirnir. Ég mun gera mistök og missti af þessu. Jafnaðu þig á þessu,“ sagði Tierney.
Liverpool Echo hefur þetta eftir Tierney en það er auðvelt að heyra tal leikmanna og þjálfara með enga aðdáendur á vellinum.