Það ætlaði allt að sjóða upp úr á heimavelli Tottenham í kvöld en liðið leikur nú við Everton.
Dómari leiksins var að flauta til hálfleiks en leikmenn Tottenham rifust heiftarlega áður en þeir gengu til búningsklefa.
Hugo Lloris ætlaði að vaða í Heung Min-Son, liðsfélaga sinn, og þurftu leikmenn að skilja þá í sundur.
Hvað gekk á er óvíst en Tottenham er að vinna leikinn með einu marki gegn engu.
Þetta má sjá hér.
#thfc team-mates Hugo Lloris and Heung-Min Son clashing at half-time. [Football Daily] pic.twitter.com/V9EqdWdF2z
— Hotspur Related (@HotspurRelated) July 6, 2020