Tottenham 1-0 Everton
1-0 Michael Keane(sjálfsmark, 24′)
Það var alls ekki frábær leikur á dagskrá á Englandi í kvöld er Everton heimsótti Tottenham.
Um var að ræða leik í 33. umferð deildarinnar og voru það heimamenn sem höfðu betur, 1-0.
Tottenham lyfti sér upp í áttunda sæti deildarinnar með sigrinum og er einu stigi á eftir Arsenal í því sjöunda.
Michael Keane varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í fyrri hálfleik sem reyndist nóg til að tryggja sigur.
Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði hjá Everton en fór af velli á 67. mínútu.