James Rodriguez, leikmaður Real Madrid, neitaði að spila í leik liðsins gegn Athletic Bilbao um helgina.
Frá þessu greinir Zinedine Zidane, stjóri Real, en James var ekki í leikmannahópnum í 1-0 sigri á sunnudag.
James er sterklega orðaður við brottför frá Real en hann er ekki fyrsti maður á blað á Santiago Bernabeu.
,,Hann vildi ekki vera með og það var hans ákvörðun,“ sagði Zidane við blaðamenn.
,,Ástæðan er á milli hans og mín og ég mun ekki segja ykkur meira.“