Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur nefnt tvö sigurstranglegustu liðin í Meistaradeild Evrópu.
Liverpool vann keppnina á síðasta ári en er úr leik eftir tvo leiki við Atletico Madrid í 16-liða úrslitum.
Að mati Klopp þá eru Bayern Munchen og Manchester City líklegust til að vinna keppnina.
,,Að mínu mati þá eru sigurstranglegustu liðin Bayern og Manchester City,“ sagði Klopp.
,,Það yrði mjög áhugaverður leikur! Ég veit ekki alveg hvort það gerist eða hvort þau mætist í undanúrslitum.“
,,Þetta eru augljóslega tvö líklegustu liðin.“