Kai Havertz, leikmaður Bayer Leverkusen, vill spila í ensku úrvalsdeildinni að sögn liðsfélaga hans, Wendell.
Havertz er aðeins 21 árs gamall en hann er orðaður við lið á borð við Chelsea, Manchester United og Liverpool.
Wendell telur að draumur Havertz sé að spila á Englandi og gæti það gerst næsta vetur.
,,Hann er fullkominn leikmaður. Þú getur spilað honum í níunni, tíunni eða aðeins aftar. Hann veit líka hvernig á að spila á vængjunum,“ sagði Wendell.
,,Hann skilur hvað þjálfarinn vill. Hann getur klárað með báðum fótum og er með góða tækni.“
,,Ef hann fer til Englands þá mun hann læra mikið. Ég held að Kai dreymi um að spila þar. Það er það sem hann vill.“