Sölvi Geir Ottesen, leikmaður Víkings R, fékk að líta beint rautt spjald í leik gegn KR í kvöld.
KR vann 2-0 heimasigur á Víkingum þar sem þrír leikmenn gestanna fengu að líta beint rautt spjald.
Fyrst var Kári Árnason rekinn af velli og þeir Halldór Smári Sigurðsson og Sölvi fylgdu í seinni hálfleik.
Spjald Sölva var heldur ósanngjarnt en Pablo Punyed ýtti í bakið á varnarmanninum sem fór með hendina í andlit leikmanns KR.
Sölvi var svo sannarlega ekki kátur þegar hann gekk af velli og lét Einar Inga, fjórða dómara, heyra það á hliðarlínunni.
,,Fokkaðu þér, auminginn þinn,“ sagði Sölvi við Einar áður en hann gekk af velli.
Þetta má sjá hér.
hmm hmm hmm pic.twitter.com/mzuLbYtmaG
— aron kristinn (@aronkristinn) July 4, 2020