Sara Björk Gunnarsdóttir hefur yfirgefið lið Wolfsburg í Þýskalandi þar sem hún lék í fjögur ár.
Sara er landsliðsfyrirliði Íslands og hefur einnig gegnt lykilhlutverki hjá þýska liðinu sem er það besta þar í landi.
Sara vann deildina fjögur ár í röð með Wolfsburg en hefur nú skrifað undir samning við Lyon.
Hennar verður sárt saknað í Þýskalandi og birti Wolfsburg fallegt kveðjumyndband í gær.
Hér má sjá hvernig kveðju Sara fékk.
DANKE, SARA! 💚#VfLWolfsburg #Wölfinnen #DieLiga @sarabjork18 pic.twitter.com/qI0COB5bQi
— VfL Wolfsburg Frauen (@VfLWob_Frauen) July 2, 2020