Paul Pogba og Bruno Fernandes eru báðir að glíma við meiðsli eftir atvik sem kom upp á æfingasvæði félagsins í dag.
Frá þessu greina enskir miðlar nú rétt í þessu en leikmönnunum lenti saman á æfingu.
Samkvæmt fregnum þá kom Fernandes verr út úr samstuðinu og er ólíklegt að hann spili á morgun.
United hefur verið í fínu formi undanfarið og spilar heimaleik við Bournemouth á laugardag.
United hefur enn ekki tjáð sig um meiðslin en báðir leikmennirnir eru tæpir fyrir viðureignina.
Pogba og Fernandes hafa spilað vel saman síðan deildin hófst á ný eftir gott hlé.