Nú getur Ragnar spilað aftur en hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik í leik Fylkis gegn Val í síðustu viku. Þá kom hann einnig inn á sem varamaður í leik Fylkis og HK. Glöggir stuðningsmenn hafa eflaust tekið eftir því að Ragnar hefur spilað þessa með grímu á andlitinu en það þarf hann að gera á meðan hann jafnar sig eftir brotið. Fótbolti.net greindi fyrst frá grímu Ragnars.