Það er búið að staðfesta það að fimm skiptingar verði í boði í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Eftir COVID-19 hlé úrvalsdeildarinnar þá var þessi regla tekin upp en vanalega eru aðeins leyfðar þrjár skiptingar.
Þessi ákvörðun er ekki vinsæl á meðal allra og fékk til að mynda gagnrýni frá goðsögninni Jamie Carragher.
,,Þetta er vitleysa! Haldið ykkur við þrjár skiptingar!!“ sagði Carragher en hann er fyrrum leikmaður Liverpool.
Gary Neville er önnur goðsögn úrvalsdeildarinnar og er hann heldur ekki hrifinn af fimm skiptingum.
,,Mér líkar ekki við þetta og samþykki þetta alls ekki!“ skrifaði Neville á Twitter en þessu verður ekki breytt núna.