The Daily Mail vill meina það að Inter Milan sé að íhuga að selja danska landsliðsmanninn Christian Eriksen í sumar.
Eriksen hefur spilað með Inter undanfarna sex mánuði en hann kom frá Tottenham í janúar.
Eriksen hefur ekki fundið sitt besta form á Ítalíu en hann kostaði félagið 20 milljónir evra.
Daninn er þó verðmetinn á mun hærri upphæð en samningur hans við Tottenham var að renna út.
Inter gæti fengið allt að 55 milljónir punda fyrir Eriksen og er stjórn félagsins að íhuga sölu samkvæmt heimildum Mail.