Andri Fannar Baldursson kom inná sem varamaður í kvöld er Bologna spilaði við Napoli á Ítalíu.
Andri Fannar er gríðarlegt efni en hann hefur áður komið við sögu í efstu deild Ítalíu með liðinu.
Napoli var að vinna leikinn 1-0 þegar Andri kom inná en hann leysti Gary Medel af hólmi á 78. mínútu.
Tveimur mínútum seinna tókst Bologna að jafna metin í leik sem lauk með 1-1 jafntefli.
Bologna er í 10. sæti deildarinnar með 43 stig og mun leika í Serie A á næstu leiktíð.