KR vann gríðarlega góðan sigur í úrvalsdeild kvenna í kvöld er liðið heimsótti Stjörnuna í Garðabæ.
KR tókst að leggja Stjörnuna 3-2 á útivelli þrátt fyrir að hafa spilað manni færri allan síðari hálfleik.
Ana Victoria Cate fékk beint rautt spjald hjá KR á 32. mínútu en þá var staðan 1-1. KR var að vinna sinn fyrsta sigur í sumar eftir afleitt gengi hingað til.
FH vann einnig sinn fyrsta sigur fyrr í kvöld er liðið mætti Þór /KA og vann heldur betur óvæntan 0-1 sigur.
Þróttur Reykjavík og Selfoss áttust þá við en þeim leik lauk með markalausu jafntefli.
Stjarnan 2-3 KR
0-1 Katrín Ásbjörnsdóttir
1-1 Betsy Hassett
1-2 Alma Mathiesen
2-2 Snædís María Jörundsdóttir
2-3 Katrín Ásbjönrsdóttir
Þór/KA 0-1 FH
0-1 Madison Gonzalez
Þróttur R. 0-0 Selfoss