Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, frumsýndi í dag nýtt landsliðsmerki Íslands sem verður notað næstu árin.
Á landsliðsmerkinu má sjá landvættina en KSÍ birti myndband á samskiptamiðla þar sem merkið er kynnt.
Merkið er hannað af Brandenburg en samningar voru gerðir við fyrirtækið á síðasta ári.
Um er að ræða merki sem verður notað á öllum treyjum Íslands.
Hér má sjá myndbandið umtalaða.
Nýtt landsliðsmerki Íslands. pic.twitter.com/eujhF1DWXS
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) July 1, 2020