Njarðvík hefur styrkt sig fyrir komandi átök í 2.deild karla en liðið fékk leikmann á lokadegi félagaskiptagluggans.
Leikmaðurinn umtalaði er Tómas Óskarsson en hann kemur til liðsins frá Keflavík í Lengjudeildinni.
Tilkynning Njarðvíkur:
Tómas Óskarsson hefur skrifað undir félagsskipti til okkar frá Keflavík.
Tómas er 22 ára hægri kantmaður. Hann hefur leikið 43 leiki með Keflavík í tveimur efstu deildunum og spilaði einnig sem lánsmaður með Víði í Garði árið 2018 í 2. deildinni. Tómas á að baki einn u19 ára landsleik fyrir Íslands hönd!
Við bjóðum Tómas velkominn í grænt
Áfram Njarðvík.