Roy Keane fyrrum fyrirliði Manchester United er kominn í viðræður við Aserbaídsjan um að taka við landsliðinu.
Keane hefur verið án starfs í ár og hefur starfað í sjónvarpi í vetur og vill komast aftur í þjálfun.
Keane hefur stýrt Sunderland og Ipswich auk þess að starfa með írska landsliðinu. Hann ræðir nú við forráðamenn knattspyrnusambands Aserbaídsjan.
Ensk blöð sega að Keane sé fyrsti kostur Aserbaídsjan í starfið og að honum standi til boða að fá ansi vel borgað.
Keane þarf að svara á næstu 48 klukkustundum um hvort hann sé klár í að taka starfið í Baku að sér.
KSÍ reyndi að fá Roy Keane til að taka við íslenska landsliðinu árið 2013 en að lokum kom Lars Lagerback til starfa.